Staðfestingargjald á N1-mótið

Kæru foreldrar,

Haukar fara á N1-mótið á Akureyri 5.-8. júlí í sumar og nú fer að styttast í að við þurfum að fara að gefa upp fjölda leikmanna sem ætla á mótið svo að við vitum hvað við eigum að skrá mörg lið til þátttöku.

Mótið fer fram á íþróttasvæði KA á Akureyri og gista strákarnir í skóla í bænum. Það er gríðarleg aðsókn á mótið og við þurfum að hafa hraðar hendur varðandi skráningu þannig að við biðjum ykkur um að ganga frá þessu eins fljótt og þið mögulega getið.

Nú biðjum við ykkur um að skrá strákana hér á blogginu í athugasemdakerfinu við þessa færslu og greiða staðfestingargjald kr. 3.500- fyrir 15.mars. Staðfestingargjaldið er óendurkræft. Heildarkostnaður við mótið í fyrra var 25 þúsund og gerum við ráð fyrir svipuðum kostnaði í ár. Stefnt er að því að vera með einhverjar fjáraflanir fyrir mótið og koma upplýsingar um það á næstu dögum.

Leggja inn á reikning 0546 - 14 - 101545. Kt. 111182-3379.

MUNA AÐ SETJA NAFN Á STRÁKNUM Í SKÝRINGU VIÐ GREIÐSLU

Kveðja, foreldrastjórn

 

Ps.

Til að auðvelda foreldrastjórninni að halda utan  um þátttakendur og forráðamenn viljum við líka biðja ykkur um að skrá drengina inn á þetta form:

https://goo.gl/forms/VA1sKfofZ6Na2F2B2


Bloggfærslur 20. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband