Færsluflokkur: Bloggar

Hugleiðingar varðandi val á liði

Að velja í lið getur verið vandasamt verk, ekki síst í stóru og fjölmennu félagi. Hjá Haukum er stór hópur einn okkar mesti styrkur og fjölmargir efnilegir iðkendur gera þetta verkefni enn flóknara en engu að síður skemmtilegra. Stundum eru ekki allir sammála um val á liði í fótbolta eins og landsliðsþjálfarar Íslands í gegnum tíðina geta vottað til um. Hins vegar er það ætíð svo að þjálfararnir ráða og því verður sem betur fer seint haggað!
Þjálfarar yngri flokka Hauka leggja áherslu á að vanda sig og gefa sér tíma í val á liðum. Þjálfarar hvers flokks bera saman bækur og reyna að velja í lið eftir bestu getu og eftir stöðum leikmanna. Þeir hafa reynslu, menntun og þekkingu á sviði fótboltans, þekkja hópinn sinn vel og ber því að treysta fyrir verkefninu.
Í mótum er keppt í A-, B-, C- og D-liðum samkvæmt tilmælum knattspyrnuforystunnar og er því styrkleiki oft efstur í huga þjálfara þegar raða á í lið. Allir eiga að fá að spila við jafningja sína. Það er engum fyrir bestu að spila í liði fyrir ofan styrkleika sinn, þá gæti sjálfsmat iðkenda versnað. Það getur stundum verið betra að blómstra í D-liði frekar en að vera í aukahlutverki í C-liði og er undir þjálfurum komið að finna hvað er iðkendum fyrir bestu. Þegar valið er í lið getur æfingasókn iðkenda, áhugi, dugnaður og stundvísi auðvitað einnig skipt sköpum.

Viðhorf foreldra við liðsvali vega mjög þungt gagnvart barninu. Mikilvægt er að foreldrar geri gott úr liðsvali og hvetji börnin áfram til að hafa gaman af og standa sig frekar en að ýta undir ósætti með valið. Í mörgum tilvikum er barninu nokkuð sama í hvaða liði það er og fyrst og fremst ánægt með að fara á skemmtilegt fótboltamót með félögunum í Haukum.
Því má heldur ekki gleyma að í yngri flokkum er algjört aðalatriði að barnið hafi gaman af og njóti þess að spila fótbolta. Undir slíkum kringumstæðum bæta iðkendur sig einnig mest. Með þetta í huga er jákvæður stuðningur foreldra ómetanlegur.
Niðurröðun í lið í yngri flokkum hefur heldur ekkert að gera með hverjir skara framúr í íþróttinni seinna meir. Í dag fá allir iðkendur jöfn tækifæri til að láta ljós sitt skína á knattspyrnuvellinum. Ekki er ýkja langt síðan þjálfarar í 6. flokki þurftu að velja hverjir komust á mót og skilja hluta hópsins eftir heima með sárt ennið. Sem betur fer eru breyttir tímar og ber að líta á það jákvæðum augum. Stefna yngri flokka Hauka er að allir iðkendur fái jöfn tækifæri til að njóta fótboltans og fái verkefni við hæfi. Við viljum standa saman í að hvetja öll okkar lið á jákvæðum forsendum.

kv Freyr


Liðin á N1-mótinu

Haukar1.

Daníel,Jón V,Matthías,Óliver,Steingrímur,Sebastian,Alexander Á,Baltasar,Flóki.

Haukar2.

Brynjar,Beggi,Bjarki,Grétar,Dagur,Sindri,Ívar,Aron S,Elvis,Ísak M.

Haukar3

Ingvi,Emil,Bryngeir,Lucas,Ísak Funi,Andri G,Darri,Uni,Elvar,Halldór.

Haukar4

Karel,Ragnar,Alexander Leví,Leó,Jón Elías,Kristof,Kristófer Á,Guðmundur B,Viktor Óli,Torfi.


Haukar - Stjarnan2 á þriðjudag

Leikið er á Ásvöllum.

Spilum í rauðum búningum.

A og C lið kl 16:00 mæting 15:30

A lið: Daníel,Óliver,Steingrímur,Alexander Á,Jón Viktor,Flóki,Sebastian,Dagur,Beggi,Baltasar.

C lið: Ingvi,Jón D,Andri G,Uni,Bryngeir,Emil,Ívar Freyr,Eyþór,Darri,Brynjar,Elvar,Baldur,Lucas,Benni.

B og D lið kl 17:15 mæting 16:45

B lið:Filip,Ísak M,Allan,Bjarki,Dagur,Elvis,Aron S,Ívar,Sindri,Grétar.

D lið: Karel,Dennis,Kristof,Jón Elías,Kristófer Á,Ísak F,Halldór B,Alexander L,Alex,Guðmundur,Leó,Sindri,Jakob,Guðmundur Þormar,Bjarni,Halldór,Viktor Óli.

Forföll tilkynnist á bloggið í athugasemdir.


Leikir á mánudag og þriðjudag

Það eru leikir á mánudag 21. júní í REYKJANESBÆ, spilað er á Iðavöllum en besta aðkeyrsla að vellinum er að keyra Reykjanesbraut að Merriot hótelinu nýja beygja þar niður hringtorgið og þá eru Iðavellir önnur beygja til hægri. Ekki er spilað í A liðum

KL 15:00 Keflavík2 - Haukar C lið

C lið: Ingvi,Jón Diago,Andri G,Uni,Bryngeir,Emil,Ívar Freyr,Eyþór,Darri,Brynjar,Elvar,Baldur,Lucas,Benni.

kl 16:15 Keflavík2 - Haukar B og D lið mæting 15:45

B lið:Filip,Ísak M,Allan,Bjarki,Dagur,Elvis,Aron S,Ívar,Baltasar,Sindri,Grétar.

D lið: Karel,Dennis,Kristof,Jón Elías,Kristófer Á,Ísak F,Halldór B,Alexander L,Alex,Guðmundur,Ragnar M,Leó,Sindri,Jakob,Bjarni,Halldór,Guðmundur Þormar,Viktor.

Forföll tilkynnist á bloggið í athugasemdir.

Það er far til Keflavíkur með Frey kl 14:00 frá Ásvöllum ef einhver er í vandræðum.

Þriðjudagur 22. júní

Spilað á Ásvöllum.

KL 16:00 Haukar-Stjarnan2 A og C lið

KL 17:15 Haukar-Stjarnan2 B og D lið


Video af Leikjum við Breiðablik2 í A og B liðum

Beiðablik tók upp leiki hjá A og B liðum og sendu okkur linkinna.
A
 
B

Haukar - Fjölnir2 á mánudag

Leikið er á Ásvöllum.

Spilum í rauðum búningum.

A og C lið kl 15:00 mæting 14:30

A lið: Daníel,Óliver,Matthías,Steingrímur,Alexander Á,Jón Viktor,Flóki,Sebastian,Dagur,Beggi, Baltasar.

C lið: Ingvi,Andri G,Uni,Bryngeir,Emil,Ívar Freyr,Eyþór,Darri,Brynjar,Elvar,Baldur,Lucas,Benni.

B og D lið kl 16:15 mæting 15:45

B lið:Filip,Ísak M,Allan,Jón Diago,Bjarki,Dagur,Elvis,Aron S,Ívar.

D lið: Karel,Dennis,Kristof,Jón Elías,Kristófer Á,Ísak F,Halldór B,Alexander L,Alex,Guðmundur,Ragnar M,Leó,Sindri,Tristann,Jakob.

Forföll tilkynnist á bloggið í athugasemdir.


Æfing fimmtudag

Það er æfing á morgun fimmtudag kl 17:00 engin æfing laugardag og leikur á mánudag á Ásvöllum við Fjölnir2.


Haukar-Valur þriðjudag

Leikið er á Ásvöllum.

Spilum í rauðum búningum.

A og C lið kl 16:00 mæting 15:30

A lið: Daníel,Óliver,Matthías,Steingrímur,Alexander Á,Jón Viktor,Flóki,Sebastian,Dagur, Baltasar,Grétar.

C lið: Ingvi,Andri G,Uni,Bryngeir,Emil,Ívar Freyr,Eyþór,Darri,Brynjar,Elvar,Baldur,Lucas,Benni.

B og D lið kl 17:15 mæting 16:45

B lið:Filip,Ísak M,Allan,Jón Diago,Bjarki,Beggi,Elvis,Aron S,Anna,Eva,Ester.

D lið: Karel,Kristof,Jón Elías,Kristófer Á,Ísak F,Halldór B,Alexander L,Alex,Guðmundur,Ragnar M,Leó,Sindri,Tristann,Jakob.

Forföll tilkynnist á bloggið í athugasemdir.


Síðasta laugardagsæfingin

Æfingin á laugardag er síðasta æfingin um helgi. Sumaræfingarnar taka gildi frá og með mánudeginum 14. júní. Þá æfum við 4x í viku og frí um helgar.

Mánudagar - Fimmtudagar    13:30-14:45

Freyr og Hörður


Næsti leikur á mánudag

Næsti leikur í Íslandsmótinu er á mánudag við Breiðablik3.

Spilað er í Fagralundi.

Spilum í rauðum búningum.

A og C lið kl 16:00 mæting 15:30

A lið: Daníel,Óliver,Matthías,Steingrímur,Alexander Á,Jón Viktor,Flóki,Sebastian, Baltasar,Grétar.

C lið: Ingvi,Andri G,Uni,Bryngeir,Emil,Ívar Freyr,Eyþór,Darri,Brynjar,Elvar,Baldur,Lucas,Benni.

B og D lið kl 17:15 mæting 16:45

B lið:Filip,Ísak M,Dagur,Allan,Jón Diago,Bjarki,Beggi,Elvis,Aron S.

D lið: Karel,Kristof,Jón Elías,Kristófer Á,Ísak F,Halldór B,Alexander L,Alex,Guðmundur,Ragnar M,Leó,Sindri,Tristann,Jakob.

Forföll tilkynnist á bloggið í athugasemdir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband